Innskráning

Á næsta leyti

19. Maí - Rally
19. Maí - Kvartmíla
19. Maí - Gokart
20. Maí - Rallykross
23. Maí - Opið hús

Valseðill


Mynd úr safni

Rallý Reykjavík 2010 ..... andvökunætur

 

Á laugardaginn lauk Rallý Reykjavík 2010.  Keppendur voru 18 talsins og útlit fyrir mikla keppni í öllum flokkum.  Meðal sérleiða sem keppendur þurftu að glíma við má nefna einna helst Kaldadal sem keppendum var gert að aka þrisvar. Kaldidalur er 42 km leið sem liggur í um 600 metra hæð og meðan keppendur glíma við hraðar beygjur og snöggar hæðarbreytingar, þeytist stórfenglegt landslag framhjá með langjökul í broddi fylkingar.  Einnig voru eknar leiðar um Uxahryggi, Tröllháls og Lyngdalsheiði ásamt Djúpavatni og Kleifarvatni.


Fyrirfram mátti búast við harðri keppni í grpN (flokkur mikið breyttra bíla) og áttu margir von á því að baráttan um fyrsta sætið stæði milli Jóns Bjarna og Borgars á Subaru STi, systkynina Daníels og Ástu á Subaru STi og þeirra Péturs og Björns á MMC Evo 6.  Þeir Jón Bjarni og Borgar tóku sjálfa sig þó útúr keppninni með því að aka útaf strax á annari leið og velta bíl sínum.

Hilmar og Stefán á MMC Evo 5 leiddu keppnina lengi af en misstu mikinn tíma á næstsíðustu leiðinni þegar þeir óku útaf og festu bílinn á djúpavatni.  Keppninni lauk því með óvæntum en verðskulduðum sigri þeirra Péturs og Björns á MMC Evo 6.  Þeir félagar höfðu verið í þriðja sæti megnið af keppninni en gerðu sína atlögu í seinni hluta keppninnar og tókst það svona líka vel. Í öðru sæti voru það systkynin Daníel og Ásta sem höfðu þónokkra yfirburði á svo til öllum leiðum í þessu ralli en töpuðu miklum tíma þegar viðgerð tók of langan tíma á degi 1. Í þriðja sæti voru svo Marían og Jón Þór á MMC Evo 8 en þeir óku af miklu öryggi alla keppnina og það skilar manni oft ansi langt í þessari gríðarlöngu keppni.


Í jeppaflokki var baráttan hörð á milli þeirra Baldurs og Elíasar á Cherookee og Sighvatar og Andrésar á MMC Pajero.  Það var virkilega gaman að fylgjast með þeim etja kappi enda fulltrúar nýju og gömlu kynslóðana hér á ferð.  Þeir Baldur og Elías fóru inn á næstsíðustu leiðina vitandi að þeir höfðu forskot uppá ca. 30 sekúndur sem er lítið tími þegar Djúpavatnið er annarsvegar.  Þessi pressa virðist hafa gert útslagið því að á Djúpavatni veltu þeir Baldur og Elías bíl sínum og það var því á endanum reynslan sem sigraði æskuna og Sigvatur og Andrés fögnuðu sigri.  Í örðu sæti voru hjónin Ian og Francis Sykes en þau mæta hér á hverju ári til þess að taka þátt í Rallý Reykjavík.


Í flokki bíla með drif á einum öxli voru það "Mad" Mike Jones og Ísak á Ford Escort (300 hestafla tryllitæki) sem óku hraðast en líklega aðeins of hratt því þeir brutu öxul í tvígang í keppninni og gerðu þannig þeim feðgum Hlöðveri og Baldri kleift að fara framúr, og hefja baráttu um fyrsta sætið við AíFS áhöfnina Óskar og Valtýr á Pegout 306S16. Óskar og Valtýr kláruðu ekki allar leiðir í þessari keppni og hlutu því refsingu í formi tíma, og áttu þannig ekki möguleika á fyrsta sætinu, nema þeir  Hlöðver og Baldur gerðu mistök. Þeir héldu þó uppi miklum og jöfnum hraða alla keppnina og stóðu uppi sem verðskuldaðir sigurvegarar í þessari keppni.


Ekki voru allir keppendur sem náðu að halda sér á fjórum hjólum í þessari keppni en fyrstir til þess að velta bíl sínum voru þeir AÍFS menn Jón Bjarni og Borgar sem leiða þó enn íslandsmótið þrátt fyrir að hafa tapað af stigum í þessari keppni.  Þeir félagar kláruðu þó keppnina fyrir þrautseigju, ja eða þrjósku nokkurra kletta innan AÍFS en bíllinn var tekinn inn á verkstæði eftir að hafa oltið á um 180km hraða og einfaldlega lagaður áður en keppni hófst aftur á degi 2.

Það voru þó ekki lokin á veltunum því á Tröllhálsi veltu þeir félagar Aðalsteinn og Heimir MMC Evo X bíl sínum á yfir 200 km hraða og þar sýndi sig enn og aftur hvað öryggisbúnaður í þessari íþrótt er góður.

Síðustu veltuna í rallinu áttu þeir Baldur og Elías eins og fyrr segir en á undan þeim fóru þeir Óskar og Valtýr nokkrar byltur á Kaldadal eftir að hafa verið ræstir inn á þá sérleið kl. 13:13 á föstudeginum þrettánda.  Það skipti engum togum að bíllinn var dreginn á suðurnesin (þar sem hlutirnar gerast) og fékk sömu meðferð og Subaru bíll þeirra Jóns og Borgar hafði fengið nóttina áður.

Hér að neðan má sjá myndir af þessum ótrúlegu afrekum sem eru lýsandi fyrir félagsandann í klúbbnum okkar:

Eftir að Jónbi og Boggi veltu á leið 2 var hafist handa við að laga bílinn eftir veltuna og voru þar aðal menn AÍFS mættir á svæðið. Henning. Árni Gunnlaugs. Krisján Gunnars. Gunnar Ágeirs. en gert var við bílinn hjá Bílnet í keflavík. Byrjað rétt um 22:00 og bílinn fór fyrsta prufu túrinn um 4:30 eftir að hafa verið sprautaður og réttur.

En að þessu komu fullt af fólki allstaðar af.


Rétt fyrir rally


Eftir veltuna



viðgerðinn





















Tilbúinn í rallið


og að lokum í Rallinu

 

Jæja hér koma svo myndir af Peugeot löguðum nóttina eftir



















Svo voru menn ornir heldur þreittur eftir tvær vinnu nætur