Innskráning

Á næsta leyti

19. Maí - Rally
19. Maí - Kvartmíla
19. Maí - Gokart
20. Maí - Rallykross
23. Maí - Opið hús

Valseðill


Mynd úr safni

Upplýsingaskýrsla 5

 

Leiðrétting á leiðarlýsingu:

Á ferjuleiðum Ísólfskáli - Festi og Bryggja - Bláa lónið er rangt farið með leiðarlýsingu en beygt skal til hægri við kirkjuna en ekki vinstri eins og stendur í leiðarlýsingu

Á ferjuleið frá Stapafell/Ökugerði – Reykjaneshöll service er einnig rangt farið með leiðarlýsingu þegar sagt er að beygja skuli til vinstri á Fitjum hjá Orkunni en rétt er að beygja þar til hægri.

Þetta hefur þegar verið leiðrétt og er því hægt að hala niður réttri leiðarlýsingu hér

 

Þjónustubann á ferjuleiðum:

Þjónustubann er í gildi með eftirfarandi undantekningum:

 

Eftir sérleið 4 - Nikkel B en aðeins á milli sérleiða 4 og 5.

Eftir sérleið 7 - Kleifarvatn en aðeins á malarplani við lok sérleiðar (GPS hnit: 63° 53,653'N, 22° 3,101'W)

Eftir sérleið 9 - Djúpavatn / Íshólfskáli en aðeins á bílaplani við Festi (GPS hnit: 63° 50,636'N, 22° 26,116'W)

Eftir sérleið 13 - Bláa Lónið en aðeins bensínáfyllingar á Fitjum (GPS hnit: 63° 58,358'N, 22° 32,563'W)

Eftir sérleið 15 - Stapi en aðeins á bílaplani við Tjarnagrill (GPS hnit: 63° 58,469'N, 22° 30,483'W)

Eftir sérleið 17 - Stapafell / Ökugerði en aðeins á bílaplani við Reykjaneshöll (GPS hnit: 63° 59,669'N, 22° 33,406'W)

 

Þrengingar og refsingar:

Þrengingar verða settar upp á eftirfarandi leiðum og verður keppendum refsað um 20sek fyrir hverja snertingu:

Djúpavatn - Ísólfskáli
Bláa Lónið - ATH Keilur verða settar í beygjur til þess að hindra að keppendur "skeri" beygjurnar.
Stapafell-Ökugerði

Frekari upplýsingar um staðsetningu þessara þrenginga má finna í leiðarlýsingu.

 

Bryggjuleiðin í grindavík:

Aðstoðarökumaður er frjáls á þessari leið og óskar keppnisstjórn eftir því að aðstoðarökumenn láti eftir sæti sitt til velunnara keppninnar.

 


Upplýsingaskýrsla 5#