Tjarnagrill Rallý - Föstudagurinn
Fjölmiðlum er frjálst að nota bæði texta og myndir í þessari frétt til kynningar en endilega tengið inn á www.aifs.is
Kl: 18:37
Þá er rallið formlega hafið. Keppendur eru nú að gera sig tilbúina til þess að aka fyrstu sérleið sem er Patterson - 3.6 km löng malbikuð leið en fyrsti bíll ræsir inn á leiðina kl. 18:30
Nú þegar hafa tvær áhafnir hætt við þáttöku en það eru Guðmundur og Þórður Mckinstry á Tomcat og þau Baldur og Guðrún á Subaru Impreza. Það eru því 12 áhafnir sem hefja keppni.
Kl: 18:52
Þá er fyrstu sérleið í Tjarnagrillsrallinu lokið en besta tímann á þeirri leið áttu þeir Jón Bjarni og Halldór sem aka Subaru Impreza STi en 3 sec á eftir þeim voru þeir Jón Örn og Sigurjón á Evo 6 með tímann 2:32. Fyrsta leiðin er ekki nema 3.6 km þannig að Jón Bjarni er að aka rétt ræpri sekúndu hraðar hvern kílómeter heldur en nafni sinn Jón Örn. Hilmar B og Davíð á Evo 7 flygja þessum áhöfnun þó fast á eftir og eru þeir aðeins fjórum sekúndum frá því að stela fyrsta sætinu af Jóni og Halldóri
Fljótastur af minna breyttu bílunum voru þeir Ragnar og Andri á Pegout. Þeir óku á tímanum 2:41 aðeins sekúndu á undan næstu áhöfn þeim Gunnari og Jóhann á Ford Focus.
Það eru þó aðeins búnir 3,6 km af 101 km svo að rallið er bara rétt að byrja og því gæti mjög margt breyst
Nú eru bílarnir að fara að aka sérleið númer 2 en það er sama leið og sérleið númer 1 - von er á nýjum tímum von bráðar
Kl: 19:38
Jón Örn og Sigurjón á MMC Evo 6 tóku vel á því á sérleið 2 og óku leiðina á 2:25 og komu sér þannig í fyrsta sætið í keppninni. Jón og Halldór á Subaru áttu lakan tíma á sérleið 2 eða 2:34 og eru þeir því komnir 6 sec á eftir þeim Jóni og Sigurjóni. Aðeins einni sec á eftir þeim eru þeir Hilmar og Davíð á MMC Evo 7 en þeir óku sérleið 2 á tímanum 2:31
Einar og Símon á Audi Quattro óku næsthrðast á sérleið 2 eða á tímanum 2:30 og eru þeir því í fjórða sæti eins og staðan er.
Af minna breyttu bílunum voru það þeir Gunnar og Jóhann á Ford Focus sem voru með besta tímann á sérleið 2 eða 2:40 en fast á hæla þeim voru þeir Hlöðver og Gísli á Toyota Corolla á tímanum 2:42.
Kl: 19:56
Þeir Gunnar og Jóhann á Ford Focus eru stopp á sérleið 3 vegna bilunar í drifbúnaði. Það munar ekki mörgum metrum á því að þeir séu stopp á sama stað og í rallinu í fyrra en þá þurftu þeir að hætta keppni. Við skulum vona að bilunin sé minniháttar og að þeir komi sér af stað aftur innan skamms. - -- uppfært: Þeir félagar hafa hætt keppni - Öxull dróst út
Kl: 20:10
Besta tímann á sérleið 3 áttu þeir Jón og Halldór á Subaru Sti en þeir óku á tímanum 2:23 eða þremur sec á undan þeim Hilmari og Davíð á Evo 7. Tveimur sekúndum á eftir þeim komu svo þeir Jón Örn og Sigurjón á tímanum 2:28.
Af minna breyttu bílunum voru það þeir Bragi og Magnús á Subaru Impreza sem óku hraðast á sérleið 3 eða á tímanum 2:40 og skutu sér þannig úr næst síðasta sætinu í þessari keppni upp í það sjöunda.
Kl: 20:40
Þá eru komnir tímar fyrir sérleið 4 Nikkel. Fljótastir voru þeir Hilmar og Davíð á Evo7 en aðeins sekúndu á eftir þeim voru þeir Jón Bjarni og Halldor á Subaru Sti. Jón Örn og Sigurjón voru einnig aðeins 1 sec á eftir þeim Jóni og Halldóri. Það er því mikil barátta í gangi um fyrsta sætið en það eru aðeins þrjár sekúndur á milli fyrsta og þriðja sætis eins og staðan er núna.
Þeir Bragi og Magnús á Subaru Impreza óku hraðast af minna breyttu bílunum og bættu meira að segja tímann sinn um heilar 3 sek frá fyrri ferð um Nikkel. Með þessum tíma sínum hafa þeir því tekið forustu í sínum flokk en fast á hæla þeim koma þeir Ragnar og Andri á Pegout 306 en þeir eru aðeins fjórum sekúndum á eftir þeim Braga og Magnús.
Kl: 21:26
Þá eru komnir tímar fyrir næst síðustu leiðina í dag. Jón og Halldór á Subaru STi óku leiðina á 6:02 eða fimm sekúndum á undan þeim Hilmari og Davíð á MMC Evo 7. Jón Örn og Sigurjón byrjuðu leiðina vel og um tíma leit út fyrir að þeir myndu ná sama tíma og Jón og Halldór en eitthvað töfðust þeir og enduðu 10 sek á eftir þeim Jóni og Halldóri.
Í flokki minna breyttra bíla voru það þeir Ragnar og Andri á Pegout 306 sem sigruðu en þeir óku á 6:47 sem er sami tími og Guðmundur og Ólafur á Subaru Impreza. Þriðju urðu svo þeir Hlöðver og Gísli á tímanum 6:51
Bragi og Magnús töpuðu forustunni á þessari leið en þeir tóku afar slakan tíma á þessari leið eða 7:50.
Kl: 21:54
Tímarnir fyrir síðustu sérleiðina í dag eru nú komnir og staðan eftir fyrsta dag ljós. Jón Bjarni og Halldór á Subaru Sti óku síðustu sérleið dagsins á tímanum 6:10 en aðeins 1. sek á eftir þeim voru þeir Hilmar og Davíð á MMC Evo7. Jón Örn og Sigurjón tóku lakari tíma en í fyrri umferð um Helguvík og komu í mark 14 sek á eftir þeim Jóni og Halldóri.
Kl: 22:10
Leiðréttingar á tímum:
Bíll nr. 8 - Hlöðver og Gísli óku Sérleið 3 á 2:51 en ekki 3:51 eins og fyrst var gefið út
Bíll nr. 15 - Guðmundur og Ólafur óku sérleið 3 á 2:40 en ekki 3:40 eins og fyrst var gefið út.
Bíll nr. 17 - Sigurður Óli og Elsa óku sérleið 6 á 6:47 en ekki 7:47 eins og fyrst var gefið út.
Smelltu hér til að lesa fréttir laugardagsins






