Félag fyrir áhugamenn um akstur 

Þeir sem nota ökutæki sér til skemmtunar eiga heima í AÍFS

Mótorsport

Mótorsport deildin okkar er okkar uppruni.  Ef þig langar að keppa í mótorsporti eða hjálpa okkur að halda keppnir þá er þetta staðurinn fyrir þig. 

Rallý, Rallýcross, Torfæra, Drift

Helstu verkefni

Mótorsport deildin okkar sér um að halda keppnir, aðalega rallý en stundum torfæru eða rallýcross.

Þar er mikil reynsla og hægt að spjalla við aðila sem hafa keppt í öllum tegundum mótorsports á Íslandi.

Ef þú vilt taka þín fyrstu skref í því að keppa eða aðstoða við skipulag eða regluverk í mótorsporti á Íslandi þá er fyrsta skrefið að skrá þig.

Allir sem eru skráðir í AÍFS hafa aðgang að öllum deildum og það er hægt að skipta um deild eftir að þú skráir þig.

Meiri upplýsingar

Mótorsportdeildin er á facebook

Smelltu hér til að skoða

Glæsibílar

Glæsibíladeildin okkar er nýjasta viðbótin.  Þar safnast eigendur að flottum tækjum saman og bera saman bækur sínar, fara saman á rúntinn ofl.

Fornbílar, Glæsibílar, Sportbílar

Helstu verkefni

Glæsibíladeildin heldur reglulega rúnta og kynningarkvöld. Tilvalið að kíkja á næsta opna kvöld hjá þeim (sjá viðburði hér á síðunni).

Í deildinni er gríðarmikil þekking á Amerískum "Muscle cars" en einnig á flestum öðrum bílum sem til eru.

Ef þú elskar flotta bíla og vilt vera í hóp sem þekkir best hvernig á að sinna viðhaldi og þrifum á þeim þá er Glæsibíladeildin fyrir þig.

Allir sem eru skráðir í AÍFS hafa aðgang að öllum deildum og það er hægt að skipta um deild eftir að þú skráir þig.

Meiri upplýsingar

Glæsibílardeildin er á aðalsíðu okkar á facebook og eru að vinna í að gera sína eigin síðu líka.

Smelltu hér til að skoða

Melrakkar

Melrakkar eru ferðahópur sem ferðast um á Buggy bílum og fjórhjólum.  Melrökkum finnst  ferðalagið og samveran skipta meira máli en áfangastaðurinn.

Fjórhjól, Buggy bílar, Ferðalög

Helstu verkefni

Melrakkar eru duglegir að ferðast saman.  Bæði stuttar ferðir í nágrenninu og lengri ferðir þar sem gist er á hótelum eða skálum uppi á hálendi.

Melrakkar eru duglegir að halda kynningar og eru frægir fyrir "Brask og brall" kvöldin sín.

Ef þú átt fjórhjól eða buggy bíl og vilt ferðast um landið í skemmtilegum félagsskap þá eru Melrakkar rétti hópurinn fyrir þig.

Allir sem eru skráðir í AÍFS hafa aðgang að öllum deildum og það er hægt að skipta um deild eftir að þú skráir þig.

Meiri upplýsingar

Melrakkar eru með sína eigin heimasíðu og líka á Facebook

Melrakkar á facebook (lokuð síða) Heimasíða Melrakka - Melrakkar.is